Byrjum daginn á þessum bragðgóða og meinholla morgunverðarþeytingi með Ab mjólk, engifer, spínati, appelsínum og svo stráum við hampfræjum í lokin og jafnvel smá sírópi.
Meinhollur og dásamlega fagur
Hindberjaþeytingur með engifer, spínati, appelsínum og hampfræjum
Styrkt færsla
fyrir 2-3
2 banani
3 lúkur spínat
5 dl hindber
500 ml AB mjólk frá Mjólka
safi úr 2-3 appelsínum
2 tsk rifin engiferrót
2 tsk hunang
hampfræ
- Setjið öll hráefnin í blandara og vinnið vel saman.
- Hellið í glös og stráið hampfræum yfir og ef þið viljið smá dropa af hlynsírópi.
Leave a Reply