

| 2 msk olía | |
| 1 laukur, saxaður | |
| 1/2 krukka Patak's Korma Spice mix | |
| 1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
| 50 ml vatn | |
| 2 hvítlauksrif, pressuð | |
| 1 tsk ferskt engifer, rifið | |
| 500 g kjúklingur, t.d. frá Rose Poultry | |
| 50 ml rjómi | |
| 1 tsk sykur |
Fyrir 3-4
| 1. | Hitið olíu á pönnu. Steikið lauk, hvítlauk og engifer í 30 sekúndur. |
| 2. | Bætið kjúklingi saman við og brúnið. |
| 3. | Bætið Korma maukinu út á pönnunina ásamt vatninu og látið malla við vægan hita í 5 mínútur. |
| 4. | Bætið kókosmjólk, rjóma og sykri saman við og látið malla í 15 mínútur. |
| 5. | Stráið kókosflögum og söxuðu kóríander yfir kjúklinginn. |
| 6. | Berið fram með hrísgrjónum, naan og einföldu salati. |

Leave a Reply