Þessir geggjuðu nammibitar hafa verið gerðir oft á mínu heimili og eru frábærir sem svona hollt nasl til að grípa í yfir daginn. Nýlega gerði ég þessa dásemd en áttaði mig hinsvegar ekki á því fyrr en oft seint að ég ætti ekki dökkt súkkulaði sem fer vanalega á bitana heldur bara fílakaramellu. Ég nennti alls ekki út í búð og þar sem ég átti fílakaramellur brá ég á það ráð að skella fílakaramellukremi á þessa annars meinhollu nammibita og vá – ekki urðu þeir verri af því. Meinhollir eða aðeins minna hollir – ykkar er valið.
| 150 g döðlur, steinlausar | |
| 1 msk kókosolía | |
| 30 g möndlur | |
| 15 g haframjöl | |
| 1/4 tsk salt | |
| 1 tsk kakó | |
| 1/2 tsk kanill | |
| 200 g fílakaramellur | |
| 1 dl rjómi, bræddur |
Döðlutrekant með fílakaramellukremi
| 1. | Setjið döðlur í matvinnsluvél og maukið. |
| 2. | Blandið kókosolíu saman við og blandið í matvinnsluvélinni í nokkrar sekúndur. Bætið þá möndlum, haframjöli, salti, kakó og kanil saman við og blandið gróflega saman í matvinnsluvélinni (ekki of lengi). Setjið í form og þrýstið niður. |
| 3. | Gerið fílakaramellukremið með því að setja karamellurnar og rjóma saman í pott og sjóða við vægan hita. Kælið lítillega og hellið yfir bitana. |
| 4. | Setjið í kæli eða frysti og skerið í bita eftir að kremið hefur harðnað. |


Leave a Reply