Amerískar jógúrtpönnukökur með bláberjafyllingu
150 g hveiti
1 msk sykur
1 tsk lyftiduft
1/4 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
2 msk smjör
180 ml mjólk
120 g hrein jógúrt
1 egg
100 g bláber, fersk
- Blandið saman í skál hveiti, sykri, lyftidufti, matarsóda og salti og blandið vel saman. Bætið bláberjunum varlega út í.
- Brærið smjörið og látið kólna þar til það er orðið volgt.
- Blandið saman mjólk og jógúrt og bætið eggjahvítunni út í, en hrærið eggjarauðunni saman við brædda smjörið.
- Hellið því næst blautu hráefnunum saman við þurrefnin. Blandið varlega saman. Steikið á olíusmurðri pönnu og þegar pönnukökurnar eru tilbúnar berið þær fram með hlynsýrópi.
Leave a Reply