Bananakaka með möndlu- og döðlubotni toppuð með kókossúkkulaðikremi

Home / Bananakaka með möndlu- og döðlubotni toppuð með kókossúkkulaðikremi

Hvort sem þið elskið eða elskið ekki hrákökur, þá munið þið öll elska þessa sælu. Þessi dásamlega kaka er stútfull af góðri næringu eins og möndlum, döðlum, eggjahvítum, kókosmjólk og bönunum. Hún er einföld í gerð og algjört sælgæti í munni.

IMG_1085

IMG_1102

Bananakaka með möndlu- og döðlubotni og kókossúkkulaðikremi
4 þeyttar eggjahvítur
1 dl döðlumauk (heitu vatni hellt yfir döðlurnar, látið standa þar til mjúkar og maukið)
2 dl döðlur, saxaðar
2 dl möndlur, saxaðar

2 bananar, skornir í sneiðar

Kókossúkkulaðikrem
70 ml Blue dragon kókosmjólk
70 g 50-70% súkkulaði

  1. Blandið 1/4 af eggjahvítunum saman við döðlumaukið, söxuðu döðlurnar og hneturnar með sleikju. Blandið restinni af eggjahvítunum síðan varlega við. Smyrjið bökunarform með kókosolíu og hellið deiginu í það.
  2. Bakað við 170 gráðu í 20-25 mínútur. Takið út og kælið lítillega.
  3. Takið kökuna úr forminu og setjið á kökudisk. Raðið banönunum yfir kökuna.
  4. Gerið því næst súkkulaðikremið með því að bræða súkkulaðið og kókosmjólk saman í potti við vægan hita. Hellið yfir kökuna og njótið með rjóma (t.d. kókosmjólkurrjóma).

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.