Bestu heimatilbúnu tortillurnar

Home / Bestu heimatilbúnu tortillurnar

Já ég veit við erum alltaf á hraðferð, hvort sem það er vinnan, námið, börnin, leikfimin eða eitthvað annað. Við eigum eftir að fara í búðina og vitum ekkert hvað við ætlum að hafa í matinn. Ég þekki þetta af eigin raun og trúið mér þá er það ekki efst á óskalista að flækja hlutina og gera heimatilbúnar tortillur.

En hinsvegar að þá er einstaka sinnum ótrúlega notalegt að gera matinn frá grunni, fá heimilismeðlimi til að taka þátt í eldamennskunni og bara njóta stundarinnar.

Það er líka mun einfaldara en margur heldur að gera heimabakaðar tortillur og þessar eru svo dásamlegar að þær munu ekki valda ykkur vonbrigðum. Með þessum tortillum bar ég marineraðan kjúkling með heimsins bestu marineringu á kjúkling eða annað kjöt og vá hvað ég hlakka til að gefa ykkur uppskriftina af þeirri dásemd ásamt fersku guagamole, salati, paprikum, rauðlauk og fleira gúmmelaði.  Meira um það síðar. Njótið vel :)

IMG_4153

IMG_4164

IMG_4170

 

Heimagerðar tortillakökur
375 g hveiti (eða t.d. hveiti og spelt til helminga)
1 tsk salt
1 tsk lyftiduft
80 ml grænmetisolía
240 ml heitt vatn

  1. Blandið hveiti, salti og lyftidufti saman í skál. Bætið olíu og vatni saman við og hrærið í hrærivél í um 1 mínútu en stoppið nokkrum sinnum og skrapið deigið niður úr hliðunum. Þegar þetta hefur blandast vel saman, stillið á lægstu stillingu og hrærið í aðra mínútu.
  2. Færið á hveitistráð borð og skiptið deiginu í tvenn og síðan aftur í tvennt. Haltu þessu áfram þar til þú hefur skipt deiginu í 16 jafnstóra hluta og mótið síðan í kúlur.  Ef deigið er klístrað bætið smá hveiti saman við. Setjið viskustykki yfir kúlurnar og leyfið að standa í um 15 mínútur.
  3. Eftir þetta skuluð þið fletja deigið út og hita því næst pönnukökupönnu eða litla pönnu. Þegar hún er orðin mjög heit setjið pönnukökuna á pönnuna og steikið í um 1 mínútu eða þar til hún er farin að fá brúna hringi, færið á hina hliðina og hitið í 30 sekúndur. Gott er að geyma tortillurnar í poka með rennilás eða lokuðu íláti. Það heldur þeim mjúkum meðan hinar pönnukökurnar eru bakaðar.
  4. Tortillurnar haldast ferskar í lokuðu íláti í sólahring og geymast einnig í frysti í langan tíma.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.