Þó svo að vorið sé ekki komið til okkar að þá má engu að síður þykjast. Hér er á ferðinni léttur og ljúffengur réttur sem færir okkur að minnsta kosti sól í hjarta.
Nýja uppáhaldið mitt eru kjúklingalæri sem eru ljúf tilbreyting frá kjúklingabringunum en þau eru oft mýkri og safaríkari. Í þessari uppskrift notaði ég kjúkling frá Rose en hann er fyrsta kjúklingavaran á Íslandi sem gæðavottaður er skráargatinu en tilgangur Skráargatsins er fyrst og fremst sá að auðvelda neytendum að finna hollustuvörurnar í sínum flokki með þessari gæðavottun. Úrbeinuðu kjúklingalærin frá Rose Poultry eru því hollasti valkosturinn sínum flokki og það líkar mér vel. Kjúklinginn frá Rose má finna í öllum helstu matvöruverslunum landsins.
Marineringin gerð klár
Ef tími gefst leyfið þessu að standa aðeins
Kjúklingalærin vafin í parmaskinku
Dinner is served
Rósmarínkjúklingur í parmaskinku
60 ml ólífuolía
3 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
rósmarín, fersk
10 kjúklingalæri, úrbeinuð
salt og pipar
10 sneiðar parmaskinka
2 sítrónur, skornar í báta/sneiðar
baslamikedik
- Látið ólífuolíu og hvítlauk saman í skál. Saxið um 1-2 msk af fersku rósmarín og látið saman við.
- Saltið og piprið kjúklingalærin og bætið þeim út í marineringuna. Ef þið hafið tíma er gott að leyfa þessu að liggja í smá stund.
- Vefjið kjúklinginn í hráskinkuna og látið litla rósmarín grein í miðjuna.
- Dreypið smá olíu á kjúklinginn og grillið í um 12-15 mínútur eða látið kjúklinginn inn í 180°c heitan ofn í um 35- 40 mínútur. Varist að ofelda hann.
- Kreistið sítrónu yfir hvern kjúklingabita og hellið smá balsamikediki yfir áður en þið gæðið ykkur á þessari dásemd. Berið fram með góðu salati og t.d. kartöflumús.
Leave a Reply