Það er við hæfi að byrja árið með trompi og með uppskrift að þessum gómsæta ávaxta- og grænmetishristingi. Grænu þrumuna í sinni upprunarlegu mynd getið keypt á veitingastaðnum Lifandi markaður og er hann einn vinælasti heilsudrykkurinn þar, enda alveg einstakur á bragðið. En það er líka gott að geta gripið í hann þegar maður er heima við og því kem ég hérna með uppskrift að svipuðum drykk.
Eitt glas á dag kemur skapinu í lag!
Græna þruman
1 grænt epli
bútur engifer, rifinn
lúka spínat
lúka rucola
1 mangó
nokkrar döðlur
hnífsoddur cayenne pipar
1 msk grænt duft – ph ion (má sleppa)
1 msk grænt te (má sleppa)
klaki
eplasafi eða vatn til þynningar
Aðferð
Allt látið í blandara og blandað vel saman. Sett í glas og notið! Drekkið einn daglega og finnið fyrir jákvæðum áhrifum sem þessi drykkur færir ykkur.
Leave a Reply