Hollar chilíbrownies með þeyttum kókosmjólkurrjóma

Home / Hollar chilíbrownies með þeyttum kókosmjólkurrjóma

Chilíbrownies sem ekki þarf að baka með þeyttum kókosmjólkurrjóma segja allt sem segja þarf. Þessar kökur bræða hjörtu allra, líka þeirra sem vita ekki einu sinni hvað hrákökur eru og eru ekki bara meinhollar heldur svo ótrúlega fljótlegar í gerð.

IMG_1834

IMG_1653

IMG_1752

IMG_1934

IMG_1894-2

IMG_1916

 

Hollar chilíbrownies
200 g valhnetur eða pekanhnetur
430 g döðlur, steinlausar og mjúkar
2 msk hörfræ (nota stundum chia þá 1 msk)
1 tsk kanill
1 tsk chiliduft
1/4 tsk sjávarsalt
120 g hreint kakó frá Nóa Síríus

Súkkulaðikrem
60 ml kókosolía, fljótandi
65 g hreint kakó frá Nóa og Síríus
2  msk hlynsýróp
1/2 tsk chilíduft
1/2 tsk kanill
1 tsk chilí flögur (má sleppa)

  1. Látið döðlurnar í matvinnsluvél á “pulse-stillingu” og bætið síðan hnetum, hörfræjum, kanil, chilídufti og salti saman við þar til allt hefur blandast vel saman og er orðið nokkuð mjúkt. Athugið að hér skiptir öllu máli að döðlurnar séu mjúkar og safaríkar, ef ekki að þá þurfið þið að leggja þær í bleyti í heitt vatn í um 15 mínútur. Bætið því næst kakódufti saman við og “pulsið” í um 10 sek. Nú ætti blandan að vera eins og deig, ef hún er ekki nægilega blaut bætið á smá (1-2 tsk) möndlumjólk saman við. Setjið blönduna í mót (20×20 cm að stærð) hulið smjörpappír og þrýstið henni vel niður.
  2. Gerið súkkulaðikremið með því að blanda öllum hráefnunum (að fráskildum chilíflögunum) saman í skál. Setjið kremið á kökuna og stráið chilíflögunum yfir.
  3. Látið í stutta stund í kæli og skerið síðan niður í hæfilega bita.

Þeyttur kókosmjókurrjómi
1 dós kókosmjólk (ath. ekki fituskert)
1/2 tsk vanilludropar

  1. Setjið dós af kókosmjólk í ísskáp í dágóða stund (helst yfir nótt).
  2. Opnið dósina og takið þykka hlutann úr en skiljið vatnið eftir.
  3. Setjið í hrærivélaskál ásamt vanilludropum og þeytið.
  4. Berið fram með chilíbrownies og jarðaberjum.

*Fallega marmarabrettið og viskustykkið undir eru úr versluninni Snúran www.snuran.is

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.