Hér er frábær uppskrift að kalkúni sem ég var með á jóladag, kalkúnabringan var lögð í pækil (kryddað saltvatn) sem gerði hana extra safaríka og styttir eldunartímann. Með þessu bar ég trönuberjafyllingu, sæta kartöflumús með geggjuðum Kornflex mulningi. Þetta var síðan toppað með yndislegri púrtvínssósu (má líka nota rauðvín) sem fyrst að ég gat gert getið þið auðveldlega líka. Einfalt og gott og svo dásamlega gott.
Safarík kalkúnabringa
Frábær kalkúnabringa með trönuberjafyllingu, púrtvínssósu og kartöflumús með kornflexkurli
Pækill
250 g gróft salt
75 g sykur
1 msk oregano
1 msk tímian
2 tsk pipar
1 tsk kanill
1 tsk engifer
½ tsk chilipipar
5 l vatn
- Sjóðið 1 lítra af vatni í stórum potti.
- Setjið salt, sykur og krydd út í og hrærið þar til saltið er alveg uppleyst.
- Hellið 3-4 lítrum af ísköldu vatni saman við látið lögin kólna vel.
- Setjið svo kalkúninn út í – best er að bringurnar snúi niður – og bætið við ísköldu vatni þar til flýtur yfir. Setjið lok yfir og látið standa á köldum stað í að minnsta kosti 8 klst eða í góða 1-2 sólahringa.
- Takið kalkúninn þá úr pæklinum, skolið hann vel úr köldu vatni og þerrið haminn með eldhúspappír. Látið hann standa við stofuhita í 30 mínútur.
Kalkúnninn – eldun
1 stk kalkúnabringa, ég var með rúmlega 2 kg bringu (en hægt að nota heilan kalkún)
kalkúnakrydd, ég notaði reyndar kryddið Yfir holt og hæðir frá Kryddhúsinu (geggjað gott)
salt og pipar
100-200 g smjör
2 dl hvítvín, t.d. Stemmari
- Setjið smjör á pönnu um 1-2 msk og brúnið bringuna á báðum hliðum.
- Takið af pönnunni og látið í ofnfast mót.
- Setjið hvítvín og smjör í botninn á mótinu og eldið bringuna upp úr því. Eldið við 160°c heitan ofn þar til kjöthitamælirinn sýnir 64°C.
Trönuberjafylling
franskbrauð
3 rauð epli
1-2 perur
sítrónusafi
100 g pekanhnetur
50 g furuhnetur
1 handfylli trönuber
3-4 msk Philadelphia rjómaostur
parmesan, rifinn
krydd (kalkúnakrydd, timian, oregano
- Skerið skorpuna af brauðinu og skerið í teninga.
- Skerið perur og epli í teninga og kreystið smá sítrónusafa yfir.
- Steikið franskbrauð, epli, perur, hnetur og trönuber á pönnu. Smakkið til með rjómaosti, parmesan og kryddum.
- Bætið vatni saman við eftir þörfum. Setjið í ofnfast mót og inní ofn og hitið þar í 15 mínútur.
4 sætar kartöflur
- Stingið göt á kartöflunar með gaffli. Setjið í 180°c heitan ofn í um klukkustund eða þar til þær eru orðnar linar. Skerið í tvennt og skafið kjötið úr þeim.
- Öllum hráefnum er hrært vel saman. Sett í eldfast mót og bakað í 20 mín og tekið út. Síðan kemur:
- Þessu er blandað saman og síðan hellt yfir kartöflurnar.
- Að lokum er þetta allt bakað í 20 mín til viðbótar.
Púrtvínssósa
1 laukur
2 tsk salvía
3 msk olía
2 dl hvítvín, t.d. Stemmari
6 dl vatn
1 msk kjúklingakraftur, t.d. frá Oscar
1 tsk nautakraftur, t.d. frá Oscar
2 dl rjómi
3 msk rifsberjasulta
1 dl portvín, t.d. Sandeman
1-2 msk sósuþykkni
soð af kalkúninum
- Setjið olíu í pott og hitið.
- Saxið laukinn smátt og steikið á pönnunni ásamt salvíu. Bætið hvítvíni saman við og látið malla í um 5 mínútur.
- Bætið vatni, kjúklinga- og nautakrafti saman við og hitið að suðu. Bætið þá rjóma, rifsberjasultu og soði frá kalkúninum saman við. Þykkið með sósuþykkni og smakkið til með púrtvíni, salti og pipar.
Leave a Reply