Þessa hef ég bakað áður við mikla lukku enda eru hér á ferðinni lúxus útgáfa af hafraklöttum sem innihalda saxað Twix súkkulaði. Einfaldir og fljótlegir en ofboðslega ljúffengir.
Twix hafraklattar
250 g smjör, lint
180 g púðursykur hrært vel saman með smjörinu
2 egg bætt við og hrært vel saman
1 tsk vanillusykur
260 g hveiti
smá klípa af salti
1tsk matarsódi
1tsk lyftiduft
150 g haframjöl
3-4 pakkar Twix, saxað
- Hrærið smjöri og púðursykri vel saman eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Bætið eggjum saman við, einu í einu.
- Bætið þá vanillusykri, hveiti, salti, matarsóda, lyftidufti og haframjöli saman við. Saxið Twix og bætið varlega saman við með sleif.
- Bakið í 15-18 mín í 180°c heitum ofni.
Leave a Reply