Þessir nammibitar eru af hollari gerðinni og komast ansi nálægt því að vera eins og Snickers á bragðið. Þeir eru einfaldir í gerð með hollu nougat-, karmellu- og salthnetufyllingu og þetta er að lokum toppað með þunnu lagi af dökku súkkulaði. Hreint út sagt dásamlegir!
Nammi namm!
Næstum því Snickers
ca. 16 bitar
Nougat
185 g hnetusmjör
240 g hunang
1 tsk vanilludropar
1/2 bolli próteinduft með súkkulaðibragði
1/8 tsk salt
130-150 g salthnetur, ristaðar og ósaltaðar
Döðlukarmella
32 döðlur, steinlausar
6 msk möndlumjólk
2 msk hnetusmjör
1/4 tsk salt
Súkkulaði
150 g súkkulaði (56% eða meira)
- Látið smjörpappír í 20×20 cm form.
- Hitið pott við meðalhita og blandið í hann hnetusmjöri, hunangi, vanilludropum og salti. Hrærið í þar til blandan er orðin heit, slökkvið þá á hitanum og bætið próteinduftinu saman við. Hellið blöndunni í formið og geymið.
- Blandið saman í matvinnsluvél döðlum, hnetusmjöri, möndlumjólk og salti. Blandið vel saman eða þar til allir kekkir eru farnir úr blöndunni og hún farin að líkjast karmellu. Skafið reglulega meðfram hliðunum á skálinni og hrærið áfram. Athugið að ég tvöfaldaði karmelluuppskriftina þar sem það er nær ómögulegt að blanda hana einfalda saman í venjulegri matvinnsluvél. Þið þurfið því ekki að nota hana alla, en megið það engu að síður.Ég notaði rúmlega helminginn af blöndunni.
- Þrýstið nú salthnetunum ofan í nougatblönduna. Hellið síðan karmellunni yfir og dreifið úr henni með skeið. Það er ágætt að bleyta skeiðina örlítið af og til, þá er auðveldara að dreyfa úr karmellunni.
- Bræðið að lokum súkkulaðið og hellið því yfir allt.
- Látið í frysti og geymið í nokkra klukkutíma. Skerið í bita og njótið.
Leave a Reply