Namm namm sögðu matargestir er þeir gæddu sér á þessu bragðgóða kjúklingasalati. Ef ég ætti að lýsa þessari uppskrift þá minnir hún helst bæði Ceasar salat og tælenskan kjúklingarétt. Ofureinfalt í gerð og alveg frábært í munni!
4 kjúklingabringur | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
salatblöð, t.d. lambahagasalat | |
1 tsk paprikukrydd | |
1 msk sólblómafræ | |
ólífuolía | |
40 ml sweet chilí sósa, t.d. frá Blue dragon | |
brauðteningar |
Kjúklingasalat með sætri chilísósu
1. | Skerið kjúklingabringurnar í litla bita. Kryddið með salti og paprikukryddi. |
2. | Hrærið balsamik ediki, soyasósu og ólífuolíu vel saman og veltið salatblöðunum upp úr leginum. |
3. | Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Bætið hvítlauknum saman við. Þegar kjúklingurinn er næstum fulleldaður bætið þið sweet chilísósu saman við ef hún er látin fyrr saman við á hún til að brenna. |
4. | Gerið sósuna með því að blanda hunangi, sítrónusafa, salti og pipar vel saman. |
5. | Setjið salatblöðin í skál, Látið kjúklinginn yfir salatið, ásamt fræjum og brauðteningum og setjið sósu yfir allt. Mér þykir gott að láta smá sósu yfir salatið og bera það svo fram í skál með matnum. |
6. | Munið að njóta! |
Leave a Reply