Þessi dásemdar pastaréttur er sannkallaður boðberi sumarsins. Kælt hvítvín, þessi uppskrift og gott súrdeigsbrauð og volá – þið eruð komið með hinn besta veislumat sem er tiltölulega góður fyrir budduna, fáránlega fljótlegur og ó-svo bragðgóður.
Ég notaði ferska basilíku því hún setur að mínu mati punktinn yfir i-ið þegar pastaréttir eru annars vegar en hitt gengur alveg. Í staðinn fyrir að skera beikonið í sneiðar keypti ég einfaldlega beikonkurl. Svo mæli ég með Rana pasta sem er ferskt og þarf því einungis 2 mín. í suðu. Þessi slær í gegn hjá þeim sem hann bragða!
Einfaldur og góður pastaréttur
Ostafyllt ravioli með beikonkurli í tómatrjómasósu
500 g ostafyllt ravioli frá RANA
5 dl rjómi
1 dós saxaðir tómatar
4 msk hvítvínsedik
500 g beikon
500 g sveppir
4 hvítlauksrif
basilíka
timían
parmesan
- Skerið beikon í bita og setjið á pönnu.
- Skerið sveppi niður og pressið hvítlauk og setjið saman við beikonið. Steikið lítillega og bætið tómötum saman við.
- Bætið þá hvítvínsediki, basilíku, timían, salti og pipar saman við og látið malla þar til mestur vökvi af tómötunum hefur gufað upp.
- Bætið parmesan og rjoma saman við og látið malla, ekki sjóða, við lágan hita í 20-25 mínútur. Smakkið til með hvítvínsediki, parmesan og kryddum.
- Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakkningu. Hellið vatni frá og bætið pastanum saman við sósuna.
Leave a Reply