Penne pasta í tómatrjómasósu

Home / Penne pasta í tómatrjómasósu

Þessi pastauppskrift er ein af uppáhalds pastaréttum mínum. Hún kemur úr smiðu The Pioneer Woman sem er haldið út af Ree Drummond sem er mjög vinsæll  matarbloggari. Ég get svo næstum þvi svarið það að allt sem ég hef bragðað úr hennar smiðju er dásemdin ein.

Uppskriftin sem hér birtist er frábær pastaréttur í rjómasósu með basil og risarækjum. Hann er eins og svo margar uppskriftir á síðunni ofureinfaldur og tekur stuttan tíma í gerð.

Að gæða sér á risarækjum er að mínu mati alltaf frekar sumarlegt sem á aldeilis vel við á þessum fallega sólskinsdegi. Það myndi ekkert skemma fyrir ef hann væri borinn fram með kældu hvítvíni. Góða helgi og munið …..að njóta!

 

Frábær og ofureinfaldur kvöldverður

Penne pasta í tómatrjómasósu
500 g hágæða penne pasta, t.d. frá Jamie Oliver (fæst í Krónunni)
500 g risarækjur
2 msk smjör
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, söxuð
120 ml hvítvín
420 g maukaðir tómatar
240 ml rjómi
hálft búnt steinselja, fersk
6 basil lauf, skorin
salt og pipar

  1. Eldið pastað skv leiðbeiningum þar til það er “al dente”.
  2. Hitið 1 msk smjör og 1 msk olíu á pönnu. Steikið risarækjurnar þar til þær eru orðnar bleikar. Takið af pönnunni og kryddið með salti og pipar.
  3. Setjið afganginn af smjörinu og olíunni á pönnuna og steikið lauk og hvítlauk við meðalhita í um 5 mínútur.
  4. Bætið víninu út á pönnuna og látið sjóða þar til það hefur gufað upp.
  5. Bætið tómatmaukinu og lækkið hitann á lága stillingu. Bætið því næst rjómanum saman við og hrærið. Bætið steinseljunni þá saman við.
  6. Bætið rækjunum út í og saltið og piprið eftir þörfum.
  7. Bætið að lokum öllu saman við pastað og berið fram með ferskri basilíku og parmesan.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.