Mexíkósk tortillapizza með kjúklingi

Home / Fljótlegt / Mexíkósk tortillapizza með kjúklingi

Þessi uppskrift er margra ára gömul og hefur verið notuð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina og stendur ávallt fyrir sínu. Það er því löngu orðið tímabært að endurvekja hann hér á GulurRauðurGrænn&salt. Tortillapizzan er dásamlega einföld í gerð,  sérstaklega bragðgóð og hentar vel í saumaklúbbinn eða þegar fjölskyldan vill gæða sér á einhverju sem allir elska.

IMG_4648

Steikið kjúkling, papriku og lauk saman á pönnu

IMG_4656

Bætið hveiti og fajita kryddinu og síðan vatni, rjóma og salsasósunni saman við

IMG_4672

Raðið kjúklingnum á tortillurnar

IMG_4691

Samsett tortilla, kjúklingur og svo endurtekið áfram

IMG_4695

Looking good

IMG_4697

Ostur yfir síðustu tortilluna

IMG_4698

Inní ofn með’edda

IMG_4730

Þá er bara að njóta…..

Mexíkósk tortillapizza með kjúklingi
2 msk smjör eða matarolía
400 g Rose poultry kjúklingabringur, skornar í strimla
1 laukur
1 paprika, skorin í smáa bita
1 msk hveiti
1 dl vatn
1 dl rjómi
200 g rifinn ostur
1 pakki tortilla
1 pakki fajita spice mix
1 krukka salsa sósa mild eða medium

  1. Brúnið kjúklinginn, laukinn og paprikuna í smjörinu.
  2. Stráið yfir hveitinu og fajita kryddinu.
  3. Bætið vatninu, rjómanum og salsanu út í og hrærið. Látið malla í 5-10 mín.
  4. Setjið saman með því að láta tortilla og kjúklinginn til skiptis. Enda á tortillu og strá rifna ostinum yfir efstu tortilluna. Setjið í 200° heitan ofn í 20 mín.
  5. Berið fram með guagamole, sýrðum rjóma, góðu salati, hrísgrjónum og mögulega muldu nachos.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.