Stökkar chimichanga með nautahakksfyllingu

Home / Fljótlegt / Stökkar chimichanga með nautahakksfyllingu

Mexíkóskur vekur alltaf lukku og svo ótrúlega gaman að prufa sig áfram með þessa tegund matargerðar. Hér er á ferðinni chimichanga fylltar með nautahakki sem eru steiktar þar til stökkar. Fljótleg og ofurgóð kvöldmáltíð sem slær í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum.

IMG_4888

Hráefnin undirbúin

IMG_4929

Chimichangas með nautahakksfyllingu, salsa sósu, sýrðum rjóma og kóríander

Chimichanga með nautahakksfyllingu
500 g nautahakk
1 lítill laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk chilíduft
½ tsk cumin (ath ekki kúmer)
½ tsk oregano
1 lítil dós refried beans
400 g tómatmauk, ég notaði Hunts traditional premium pastasósu
tortillakökur
rifinn ostur
tannstönglar
grænmetisolía til steikingar

Meðlæti
salsasósa
sýrður rjómi
kóríander, saxað
nachos

 

  1. Léttsteikið nautahakkið á pönnu og bætið síðan lauknum saman við og steikið áfram. Bætið því næst hvítlauk, chilídufti, cumin og oregano saman við. Blandið saman og eldið í um 30 sek. Bætið því næst baunamaukinu og tómatmaukinu út á pönnuna og látið malla þar til blandan hefur þykknað töluvert.
  2. Setjið fyllingu á endann og fyrir miðju á tortillakökunni og brjótið hana saman, lokið örugglega með tannstönglum. Ef tortillakökurnar eru ekki mjúkar látið þær þá í örbylgjuofn í 10-15 sek.
  3. Hellið olíu á pönnu þannig að hún nái vel yfir botninn á pönnunni, hitið olíuna vel og steikið tortillurnar í 2 mínútur á hvorri hlið, fylgist samt vel með hitanum og passið að þær brenni ekki. Takið úr olíunni og leggið á eldhúspappír og þerrið.
  4. Ég læt síðan ost yfir og set þær í ofn í nokkrar mínútur til að bræða ostinn en það er smekksatriði hvort þið viljið hafa hann bráðinn eða ekki.
  5. Berið þessar dásamlegu chimichangas fram með sýrðum rjóma, salsasósu (ég nota medium sterka), kóríander, hrísgrjónum og/eða nachosflögum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.