Parmesan kartöflur

Home / Fljótlegt / Parmesan kartöflur

Þetta er alveg þrusugóður réttur til að hafa sem meðlæti með uppáhaldsaðalréttinum ykkar. Kjöt eða fiskur – allt prótein kann að meta góðar kartöflur sér til halds og trausts!

4.2. parmesan kartöflur

Parmesan kartöflur
Fyrir 4
500 g kartöflur
Ólífuolía
50 g brauðmylsna
3 msk parmesanostur, rifinn
½ msk rósmarín, þurrkað
1 tsk hvítlauksduft
salt og pipar

  1. Skerið kartöflurnar í báta og hellið ríflegu magni af olíu þannig að hún hylji allar kartöflurnar vel.
  2. Blandið saman  parmesan, brauðmylsnu, rósmarín, hvítlaukskryddi, salti og pipar. Hellið því næst ostablöndunni yfir kartöflurnar og blandið vel saman. Látið á ofnplötu með smjörpappír og bakið við 220°c í 30 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar. Hrærið reglulega í kartöflunum á meðan þær eru að eldast. Saltið.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.