Kjúklinga- og beikonlasagna

Home / Helgarmaturinn / Kjúklinga- og beikonlasagna

Nú erum við byrjuð með nýjan lið á GulurRauðurGrænn&salt sem heitir Helgarmaturinn en þar munum við koma með rétti sem smellpassa inn í helgina og para hann með góðum vínum.

Fyrsti rétturinn er snilldar kjúklinga- og beikonlasagna, blanda sem getur í raun ekki klikkað. Með því bárum við fram rauðvínið Casillero del Diablo Merlot sem fæst í verslunum ÁTVR.

IMG_4964

 

Eldamennska, tónlist og gott rauðvín klikkar seint

IMG_5002

Algjört gúrmeti

Kjúklinga- og beikonlasagna
ólífuolía
10 sneiðar beikon,
1 laukur, saxaður
3 hvítlauksrif, pressuð
500 g Rose Poultry kjúklingabringur, skornar í munnbita
1 rauð paprika, söxuð
1 gul paprika, söxuð
2 msk tómatmauk (tomat paste)
400 g saxaðir tómatar í dós
100 ml kjúklingasoð
1 tsk oregano
salt og pipar
lasagnaplötur
1 lítið zucchini, skorið í sneiðar (má sleppa)
300 g mozzarella, rifinn

Bechamel sósa
50 g smjör
2 msk hveiti
250 ml mjólk
salt og pipar
hnífsoddur múskat
50 g parmesan, rifinn

  1. Eldið beikonið þar til það er orðið stökkt. Klippið það niður í litla bita og geymið í skál. Látið laukinn á pönnu og steikið þar til hann er orðinn glær. Bætið þá hvítlauknum út og steikið við vægan hita í 1 mínútu. Bætið síðan kjúklingnum saman við, aukið hitann og brúnið kjúklinginn. Látið þá paprikuna út í og hrærið í aðrar tvær mínútur.
  2. Bætið því næst tómatmaukinu og látið það þekja grænmetið og kjúklinginn. Setjið að lokum tómata, kjúklingasoð og oregano saman við og saltið og piprið að eigin smekk. Leyfið þessu að malla í 10-15 mínútur.
  3. Gerið því næst sósuna með því að setja smjörið í pott og bræða við meðalhita. Þegar það er byrjað að sjóða lítillega bætið þá hveitinu saman við og hrærið vel saman við smjörið yfir hita í 1-2 mínútur. Bætið því næst mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið stöðugt í um 3-4 mínútur. Þegar sósan hefur náð æskilegri þykkt (bætið við smá mjólk ef hún er of þykk)  bætið þá múskati og parmesanosti saman við.
  4. Setjið beikonið saman við kjúklinginn.
  5. Ausið nú einn þriðja af kjúklingnum í ofnfast mót. Raðið zucchini ofaná það og látið síðan einn þriðja af sósunni yfir það og endið með lasagnaplötunum. Endurtakið aftur (kjúklingur,zucchini, sósa, lasagnaplötur) og einu sinni enn, endið þið á sósunni og stráið síðan mozzarella yfir allt.
  6. Setjið í 200°c heitan ofn og eldið í 30 mínútur.

 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.