Eru þið tilbúin í einar rosalegustu smákökur sem þið hafið bragðað? Þessar slá öllum öðrum út með karmellu, súkkulaði og hnetukurli og gætu hreinlega ekki verið einfaldari. Njótið vel!
Snickers smákökur
100 g snickers, saxað
150 g súkkulaði, saxað (gott að nota suðusúkkulaði og rjómasúkkulaði til helminga)
150 g púðursykur
80 g smjör
1 egg
160 g hveiti
1/4 tsk natron
1/3 tsk salt
vanilludropar
- Öllu blandað saman. Rúllað í lengju og kælt. Skorið í sneiðar. Bakað við 175° í 8 mín. Kökurnar eru hafðar frekar ljósar.
- Um að gera að margfalda uppskriftina, rúlla deiginu upp í plast og frysta;), eiga svo tilbúið þegar gestir koma í hús;)
Leave a Reply