Heimalagaðar ostaslaufur eins og þær gerast bestar

Home / Brauð & samlokur / Heimalagaðar ostaslaufur eins og þær gerast bestar

Drengirnir mínir vita fátt betra en að gæða sér á ostaslaufu og hef ég fullan skilning á því. En mér hefur hinsvegar blöskrað verðið á þeim og því ákvað ég því að prufa að baka þær bara sjálf, en það hafði ég aldrei gert áður.  Við baksturinn studdist ég við uppskrift frá sjálfum meistaranum Jóa Fel og birtist í uppskriftabók Hagkaups. Það er skemmst frá því að segja að þessi uppskrift er snilld og ostaslaufurnar hurfu eins og dögg fyrir sólu. Ég mæli svo mikið með því að þið prufið þessa dásemd.

 

Ostaslaufur ..betri en úr bakaraíi

 

Smyrjið skinkumyrjunni fyrir miðju deigs

Leggið deigið saman og snúið sárinu niður áður en þið skerið

Snúið upp á þessi krútt (þarf smá þjálfun í þessu “bare with me”)

Gæðið ykkur á þessari snilld!


Ostaslaufur
330 ml mjólk, fingurvolg
1 poki (11,8 g) þurrger
600g hveiti
2 msk sykur
1 1/2 tsk salt
60g smjör, brætt

Fylling
250 g skinkumyrja eða annars smurostur
mozzarella ostur, rifinn

Skraut
sesamfræ eða birkifræ (má sleppa)

  1. Hellið fingurvolgri mjólkinni í hrærivélaskál og bætið þurrgeri saman við og látið það leysast upp í mjólkinni. Setjið því næst hveiti, sykur, salt og smjör og hnoðið vel mjög hægt í 4 mínútur. Aukið hraðann í meðalhraða í aðrar 4 mínútur.

  2. Látið deigið hefast undir rökum klúti í um 45 mínútur eða þar til deigið hefur tvöfaldast á stærð.

  3. Fletjið út með kefli í 60×25 cm.

  4. Smyrjið ostinum á miðjuna (svo að hægt sé að leggja hliðarnar alveg yfir ostinnn), setjið vatn á endana og bjótið saman. Snúið deiginu með sárið niður. penslið deigið með vatni og sáldrið fræblöndunni yfir. Skerið í strimla og snúið til að mynda slaufur. Leggið á bökunarpappír og látið hefast i 45 mín.

  5. Setjið inn í  220°c heitan ofn í um 17-20 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.