Veislupottréttur með kjúklingi, eggaldin og beikoni úr nýju matreiðslubók GulurRauðurGrænn&salt

Home / Fljótlegt / Veislupottréttur með kjúklingi, eggaldin og beikoni úr nýju matreiðslubók GulurRauðurGrænn&salt

Nýverið kom út bók GulurRauðurGrænn&salt sem inniheldur einfaldar og fljótlegar uppskriftir fyrir alla sem elska góðan mat með lítilli fyrirhöfn. Bókin er því tilvalin í jólapakkann fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í eldhúsinu sem og aðra matgæðinga. Uppskriftirnar eru allar nýjar og hér deili ég með ykkur einni dásemdinni úr þessari bók.

 

Fyrir mér er þetta hinn fullkomni kvöldmatur þar sem öllu skellt í einn pott og látið malla dágóða stund. Síðan er dásemdarinnar notið með fjölskyldunni. Þessi pottréttur leikur við bragðlaukana en hann inniheldur meðal annars kjúkling, beikon og eggaldin.  Svona réttir eru
einmitt tilvaldir þegar margir koma saman og geta oft á tíðum einfaldað manni lífið til muna.

 

Ljósmynd// Silvio Palladino

Veislupottréttur
Styrkt færsla
Fyrir 4-6
1–2 msk smjör
1 laukur
2 hvítlauksrif
250 g sveppir
½ eggaldin
2 msk paprika
500 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
250 g beikon
70 g tómatpúrra, t.d. Tomato paste frá Hunts
500 ml matreiðslurjómi
1 rauð paprika
salt og pipar

  1. Saxið lauk og hvítlauk og steikið upp úr smjöri í stórum potti.
  2. Skerið sveppina í sneiðar og steikið við háan hita þar til allt vatnið er farið úr þeim.
  3. Skerið eggaldin í tvennt, langsum, og skerið þvert í þunnarsneiðar.
  4. Setjið eggaldin og papriku í pottinn ásamt 1 msk af paprikudufti og steikið í 4–5 mínútur.
  5. Hellið öllu yfir í skál og leggið til hliðar. Skerið kjúkling og beikon í munnbita og steikið upp úr olíu saman í potti þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  6. Setjið tómatpúrru og matreiðslurjóma í pottinn og hitið. Bætið grænmetinu saman við og saltið og piprið að eigin smekk. Látið réttinn malla við lágan hita í 1- 2 klukkustundir.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.