Gúrm morgunverðartortillur með avacado og eggjum

Home / Bröns / Gúrm morgunverðartortillur með avacado og eggjum

Það er að mínu mati fátt sem toppar byrjun á góðum degi en að gæða sér á eggjum. Eggin innihalda fullt hús matar og eru próteinrík, innihalda a, b2, b6, b12 og d vítamín, fólínsýru, járn svo eitthvað sé nefnt. Eggin gefa okkur gott start á daginn og svo eru þau bara svo dásamlega bragðgóð, ódýr og endalaust hægt að finna nýjar útgáfum með þessu hráefni.

Þetta er mitt nýja uppáhald – gúrm eggjahræra með tortillu og avacado. Mér til mikillar furðu voru börnin líka að elska þetta og báðu um meira..og meira.

 

 

Morgunverðar tortilla með eggjum og avacado
4 stór egg
3 vorlaukar, saxaðir
sjávarsalt og pipar
2 tortillur
1 tsk smjör
1 avacado, stappað með gaffli
1 lime
6-8 kirsuberjatómatar, skornir í fernt
1 chilí, fræhreinsað og saxað
ferskt kóríander, saxað
rifinn mozzarella
chilí mauk, t.d. chili paste frá Blue dragon

  1. Stappið avacado og setjið safa úr hálfri lime saman við ásamt salti og pipar.
  2. Látið egg og vorlauk í skál og hrærið með gaffli. Saltið og piprið ríflega.
  3. Hitið tortillurnar á pönnu eina í einu í um 1 mínútu á hvorri hlið. Setjið í álpappír til að halda hita meðan eggin eru gerð.
  4. Setjið eggjahræruna út á pönnuna og hrærið í um 1 mínútu. Varist að hita þau of lengi því þá verða þau þurr.
  5. Setjið avacado á tortillurnar og dreyfið vel.
  6. Skiptið eggjahrærunni á milli tortillanna og setjið svo tómata, chilí og kóríander yfir. Berið fram með chilí sósu.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.