Uppskriftina af þessu salati fékk ég senda fyrir mörgum árum síðan frá einum lesanda sem ég man því miður ekki nafnið á (auglýsi eftir þér snillingur). Þetta er ofureinfalt salat með jarðaberjum og mangó í balsamik hunangsdressingu borið fram í heimagerðri tortillaskál. Virkilega bragðgott!
Kjúklingasalat í tortillaskál
Kjúklingasalat með jarðaberjum og mangó í tortilla skál
4 tortilla, minni gerðin.
2 kjúklingabringur,t.d. frá Rose Poultry
grænt salat að eigin vali, td ½ poki spínat eða salatblanda.
½ box kirsuberjatómatar, skornir í helming
½ box jarðaber, skorin í helming
1 mango, skorið í litla bita
½ rauðlaukur, skorinn þunnt
½ gúrka, skorin í bita
2-3 gulrætur, rifnar
Parmesan
Sósan
3 msk balsamic ediki
1 1/2 msk hunang
- Hver pönnukaka er pensluð með olíu og krydduð með smá salti.
Pönnukakan er sett í eldfast mót sem er minna en sjálf pönnukakan.
Svo er hún bökuð í 11-13 mín við 160°C. Látið kólna á grind. - Kjúklingabringurnar eru kryddaður með kryddi að eigin vali, og bakaðar í ofni í 25 mínútur við 200°c. Kjúklingurinn er svo skorinn í strimla. Kjúklingurinn má vera kaldur eða volgur í salatinu.
- Salatið er sett í tortilla salat skálina. Kjúklingurinn settur ofan á og svo er salatsósunni hellt yfir. Parmesan osturinn er raspaður yfir.
Leave a Reply