
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

| 500 g kartöflur | |
| 1 laukur, saxaður | |
| 3-4 hvítlauksrif, söxuð | |
| 1-2 chilí, söxuð | |
| 2 msk garam masala | |
| 1 tsk cumin | |
| 1 tsk kóríander | |
| 1 tsk kanill | |
| 1/2 tsk kardimommur | |
| 1 tsk chilíkrydd | |
| 1 dós kókosmjólk frá Blue dragon | |
| 1 dós saxaðir tómatar frá Hunt's | |
| 2 dl vatn | |
| salt |
| 1. | Skerið kartöflurnar í tvennt og sjóðið í saltvatni í 10 mínútur. |
| 2. | Setjið 2 msk af olíu á pönnu og steikið saxaðan lauk, hvítlauk og chilí á pönnu í 1 mínútu. Bætið kryddum þá saman við og blandið vel saman. |
| 3. | Takið vatnið frá kartöflunum og bætið olíu í pottinn. Brúnið kartöflurnar og bætið síðan hvítlauks og chilíblöndunni saman við kartöflurnar. |
| 4. | Hellið kókosolíu, tómötunum og vatni út í pottinn og látið malla í 20-30 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. |
| 5. | Smakkið til með salti. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply