

| 700 g kjúklingalundir, t.d. frá Rose Poultry | |
| 2 dl sýrður rjómi | |
| 0.5 dl rjómi | |
| 100 g fetaostur | |
| 3 msk Sweet chilí sósa frá Blue dragon | |
| 2 hvítlauksrif, pressuð | |
| 1 tsk timían | |
| salt og pipar | |
| 4 sneiðar beikon, eldað stökkt |
| 1. | Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og dreipið olíu yfir hann. Saltið og piprið. Látið inní 210°c heitan ofn í 15 mínútur. |
| 2. | Setjið sýrðan rjóma, rjóma, fetaost, sweet chilí sósu, hvítlauk og timían í matvinnsluvél/blandara og blandið vel saman. |
| 3. | Takið kjúklinginn úr ofninum og hellið sósunni yfir hann. |
| 4. | Látið inní ofn í 15-20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
| 5. | Takið úr ofni og stráið stökku beikonbitum yfir. |

Leave a Reply