
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

| 2 msk ólífuolía | |
| 1/2 laukur, saxaður | |
| 1 paprika | |
| 3-5 hvítlaukrif, pressuð | |
| 2 msk engifer, smátt saxað | |
| salt og pipar | |
| 1-2 msk karrý | |
| 2 dósir kjúklingabaunir | |
| 1 dós Blue dragon kókosmjólk | |
| safi úr 1 límónu | |
| handfylli fersk basilíka |
| 1. | Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, papriku, hvítlauk og engifer. Kryddið með salti og pipar. Eldið í 3-5 mínútur eða þar til laukurinn er farinn að mýkjast. |
| 2. | Bætið basilíku og karrý saman við. Látið malla í 2 mínútur. Bætið kjúklingabaunum saman við, án vökva. |
| 3. | Látið þá kókosmjólk og límónusafann saman við. Látið malla áfram í 5 mínútur við vægan hita. |
| 4. | Smakkið til og bætið salti, pipar eða límónusafa ef þurfa þykir. |

Færslan er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply