Innihaldslýsing

12 döðlur
1 dl vatn
5 eggjahvítur
100 g döðlur, saxaðar
50 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel
1 1/2 dl kókosmjöl
100 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel (ég notaði með appelsínubragði)
2 msk kókosolía frá Rapunzel
1 /2 dl kókosmjólk frá Blue dragon
Fyrir 6-8

Leiðbeiningar

1.Hitið 12 döðlur og 1 dl vatni saman í potti. Látið malla við vægan hita þar til döðlurnar eru orðnar að mauki. Kælið.
2.Stífþeytið eggjahvíturnar. Saxið 50g af súkkulaði, 100 g af döðlum og setjið saman við eggjahvíturnar ásamt döðlumauki og kókosmjöli. Blandið varlega saman við með sleif.
3.Látið í um 20 cm form og bakið við 175°c í 20 mínútur. Takið úr ofni og kælið.
4.Hitið 100 g súkkulaði, kókosolíu og kókosmjólk saman yfir vatnsbaði. Látið yfir kökuna.
5.Skreytið kökuna með ferskum berjum og berið fram með rjóma.

Færslan er gerð að fyrirmynd matarbloggsins döðlur&smjör og er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.