

| 2 skarlottlaukar, mjög þunnt sneiddir | |
| 60 ml balsamik edik | |
| 60 ml ólífuolía | |
| sjávarsalt og svartur pipar | |
| 50 g furuhnetur | |
| 1 tsk fínrífinn sítrónubörkur | |
| 1 cantaloupe melóna | |
| 8 sneiðar parmaskinka frá PARMA | |
| 1 tsk sítrónusafi | |
| parmesanostur, sneiddur með ostaskera | |
| fersk basilíka |
Hinn fullkomni forréttur
| 1. | Látið skarlottlauk, balsamik edik og ólífuolíu saman í skál. Kryddið með salti og ríflegu magni af svörtum pipar. Geymið í 15 mínútur. |
| 2. | Hitið 1 msk af ólífuolíu á pönnu og ristið furuhneturnar. Bætið sítrónuberki og klípu af salti. |
| 3. | Skerið melónuna í sneiðar og raðið á bakka. Setjið parmaskinkuna á bakkann ásamt furuhnetum. Bætið sítrónusafa saman við skarlottlauks-blönduna og dreypið yfir allt. Toppið með parmesan og basilíku. |

Leave a Reply