3/4 bolli möndlumjöl | |
1/4 bolli hnetusmjör (eða möndlusmjör) | |
1/2 bolli OTA haframjöl | |
2 msk hlynsíróp | |
Karamella: | |
3/4 bolli mjúkar döðlur, steinlausar | |
2 msk hnetusmjör (eða möndlusmjör) | |
1/4 tsk vanilludropar | |
klípa sjávarsalt | |
1/4 bolli vatn | |
1/2 bolli möndlur, saxaðar gróflega | |
Súkkulaði: | |
1/4 bolli kakó | |
3 msk kókosolía | |
3 msk síróp eða hunang |
Gerir um 12 stk
1. | Látið möndlumjöl og haframjöl í blandara og blandið þar til hefur myndað hveitilíka áferð. |
2. | Bætið sírópi og hnetusmjöri saman við og blandið þar til hefur myndast deig. |
3. | Látið smjörpappír í brauðform og látið deigið þar í og dreyfið úr. Látið í frysti. |
4. | Látið öll hráefnin fyrir karamelluna í blandara og blandið vel. Ef döðlurnar eru ekki mjúkar látið í heitt vatn í smá stund áður en þið setjið í blandarann. |
5. | Hellið karamellunni yfir botninn og stráið gróflega söxuðum möndlunum yfir allt. Látið aftur í frysti. |
6. | Blandið öllum hráefnunum fyrir súkkulaðið saman í skál og hrærið. Gott að hafa kókosolíuna vel mjúka eða fljótandi. |
7. | Hellið yfir allt og látið í frysti í 30 mínútur. Takið úr frysti og skerið í bita. |
8. | Gott er að geyma þessa í frysti ef þeir klárast ekki strax. |
Leave a Reply