Innihaldslýsing

3/4 bolli möndlumjöl
1/4 bolli hnetusmjör (eða möndlusmjör)
1/2 bolli OTA haframjöl
2 msk hlynsíróp
Karamella:
3/4 bolli mjúkar döðlur, steinlausar
2 msk hnetusmjör (eða möndlusmjör)
1/4 tsk vanilludropar
klípa sjávarsalt
1/4 bolli vatn
1/2 bolli möndlur, saxaðar gróflega
Súkkulaði:
1/4 bolli kakó
3 msk kókosolía
3 msk síróp eða hunang
Gerir um 12 stk

Leiðbeiningar

1.Látið möndlumjöl og haframjöl í blandara og blandið þar til hefur myndað hveitilíka áferð.
2.Bætið sírópi og hnetusmjöri saman við og blandið þar til hefur myndast deig.
3.Látið smjörpappír í brauðform og látið deigið þar í og dreyfið úr. Látið í frysti.
4.Látið öll hráefnin fyrir karamelluna í blandara og blandið vel. Ef döðlurnar eru ekki mjúkar látið í heitt vatn í smá stund áður en þið setjið í blandarann.
5.Hellið karamellunni yfir botninn og stráið gróflega söxuðum möndlunum yfir allt. Látið aftur í frysti.
6.Blandið öllum hráefnunum fyrir súkkulaðið saman í skál og hrærið. Gott að hafa kókosolíuna vel mjúka eða fljótandi.
7.Hellið yfir allt og látið í frysti í 30 mínútur. Takið úr frysti og skerið í bita.
8.Gott er að geyma þessa í frysti ef þeir klárast ekki strax.
Uppskrift unnin í samstarfi við OTA SOLGRYN

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.