Innihaldslýsing

360 g hveiti
80 g OTA haframjöl
1/4 tsk þurrger
1 1/2 tsk sjávarsalt
400 ml fingurvolgt vatn
Þetta brauð er svo mikil snilld! Stökkt að utan, lungnamjúkt að innan og hafrarnir setja punktinn yfir i-ið!

Leiðbeiningar

1.Blandið öllum hráefnunum saman í stóra skál og endið á heita vatninu. Þegar allt hefur blandast vel saman, látið þá plastfilmu yfir skálina og látið standa við stofuhita í 3 klst.
2.Nú ætti deigið verið byrjað að freyða. Takið það úr skálinni og látið á hveitistráð borð. Hnoðið með höndunum um 10 sinnum.
3.Setjið deigið á smjörpappír og svo ofaní skál. Látið hefast í um 30 mínútur. Á meðan setjið þið pott inní 210°c heitan ofn ásamt loki.
4.Þegar deigið er tilbúið, takið pottinn út úr ofninum og látið deigið ásamt smjörpappírnum í pottinn. Setjið lokið á og bakið í 30 mínútur. Takið lokið af og bakið í 10 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.