Innihaldslýsing

120 ml hot sauce t.d. Frank's
150 g púðursykur
2 tsk hvítlauksduft
1 msk sojasósa
3 tsk hrísgrjónaedik (eða eplaedik)
4 kjúklingabringur eða 6 kjúklingalæri
salt og pipar
1 bolli sterkja, t.d. kartöflumjöl eða hveiti
ólífuolía, til steikingar
sesamfræ, ristuð
vorlaukur, saxaður
hrísgrjón
Þessi uppskrift er fyrir 3-4 en ég mæli með að tvöfalda sósuna og bæta við kjúklingi því þið munuð vilja eiga nóg af þessum kjúklingarétti.

Leiðbeiningar

1.Látið hot sauce, púðursykur, hvítlauksduft, edik og 2 msk vatn saman í pott og látið malla við vægan hita eða þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hitanum og geymið.
2.Kryddið kjúklinginn ríflega með salti og pipar á öllum hliðum og veltið honum upp úr sterkjunni. Hitið um 1 dl af olíu á pönnunni og brúnið kjúklinginn í 3-4 mínútur á báðum hliðum.
3.Þegar kjúklingurinn er orðinn gylltu á lit, lækkið hitann og hellið sósunni yfir og látið kjúklinginn malla í 5-8 mínútur.
4.Stráið sesamfræjum og vorlauk yfir og berið fram með hrísgrjónum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.