Innihaldslýsing

1 kg bláber, fersk eða frosin
100 g púðursykur
1 msk hveiti
1 tsk kanill
1 tsk sítrónusafi
Bökudeig:
90 g OTA haframjöl, gróft
125 g hveiti
150 g púðursykur
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
120 g kalt smjör, skorið í litla bita
Fyrir 6 manns

Leiðbeiningar

1.Látið bláberin í skál. Ef þið notið frosin ber ekki láta þau þiðna. Bætið sykri, hveiti, kanil og sítrónusafa saman við og blandið vel saman.
2.Bökudeig: Blandið öllum hráefnum saman og hnoðið smjörið saman við.
3.Látið helminginn af deiginu í botninn og þrýstið deiginu niður. Hellið bláberjum yfir og myljið deigið yfir þau.
4.Bakið við 170°c í 35-40 mínútur.
5.Berið fram með ís og eða rjóma.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.