
| 170 g hveiti | |
| 25 g kakó | |
| 1 tsk matarsódi | |
| 1 tsk salt | |
| 115 g smjör, við stofuhita | |
| 200 g sykur | |
| 2 stór egg | |
| 2-3 þroskaðir bananar, stappaðir | |
| 120 g sýrður rjómi | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| 1 dl súkkulaðidropar (má sleppa) |
Þessi uppskrift er tileinkuð öllum vel þroskuðu bönununum sem bíða óþreyjufullir eftir því að breytast í gott bananabrauð. Ekki láta þá bíða lengur.
| 1. | Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið þá eggjum saman við, einu í einu. |
| 2. | Blandið þurrefnum saman í skál og bætið svo saman við eggjablönduna. Þeytið rólega saman þar til deigið hefur rétt svo blandast saman (ekki ofþeyta). |
| 3. | Bætið bönunum, sýrðum rjóma og vanilludropum saman við. |
| 4. | Endið á að láta súkkulaðidropana varlega saman við með sleif. |
| 5. | Látið deigið í smurt brauðform og bakið í 170°c heitum ofni í að minnsta kosti eina klukkustund. Stingið prjóni í brauðið til að kanna hvort það er bakað í gegn. |
Leave a Reply