Panna Cotta er einn af þessum eftirréttum sem virðist alltaf hitta í mark og í algjöru uppáhaldi. Frosinn vanillubúðingur með hindberjasósu heillar alla sem á vegi hans verða. Tilvalinn í fínt matarboð eða yfir hátíðirnar og svo dásamlega einfaldur. Prufið og njótið! Panna cotta með hindberjasósu (ca. 10 stk) 4 dl rjómi 2 1/2 dl kaffirjómi...

Panna Cotta er einn af þessum eftirréttum sem virðist alltaf hitta í mark og í algjöru uppáhaldi. Frosinn vanillubúðingur með hindberjasósu heillar alla sem á vegi hans verða. Tilvalinn í fínt matarboð eða yfir hátíðirnar og svo dásamlega einfaldur. Prufið og njótið!

Panna cotta með hindberjasósu (ca. 10 stk)
4 dl rjómi
2 1/2 dl kaffirjómi
150 gr. sykur
1 stöng vanilla
5 blöð matarlím
Aðferð: Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn, í 5-10 mín.Setjið rjóma, kaffirjóma og sykur í ipott. Kljúfið vanillustöng skafið fræin innanúr og setjið í pottinn. Hitið við vægan hita að suðu.Takið pottinn af hellunni áður en suðankemur upp. Kreistið vatnið úr matarlíminu, setjið það út í pottinn og hrærið þar tilþað er uppleyst. Setjið í form og frystið.
Ath. best er að nota sílicon form. Gott er að láta hana standa í nokkrar mínútur áður en hún er borin fram.

Hindberjasósa
150 gr hindber
50 gr. sykur.
Aðferð: Setjið hindber í matvinnsluvél og maukið vel. Setjið maukið í pott ásamt sykri og hitið við vægan hita. Hrærið í poottinum þar til sykurinn er uppleystur. Setjið í ílát og kælið.
Mér finnst gott að tvöfalda þessa uppskrift og eiga nóg af sósu.

Einfalt, fljótlegt og útúrþessumheimigott, njótið!!!!

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.