Enn skín sólin og tilvalið að skella einhverju geggjuðu á grillið. Undanfarin ár hefur kjúklingur fyrir heimska verið einn sá allra vinsælasti grillrétturinn á síðunni en hér kemur uppskrift sem er engu síðri – kjúklingurinn góðu hunangssinnepssósunni. Ég mæli með því að bera hann fram með sætum kartöflum eins og þessum eða þessum.
900 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry | |
5 msk dijon sinnep | |
4 msk hunang | |
4 msk 18 % sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka | |
2 msk tómatsósa | |
2 msk grillkrydd |
Grillaður kjúklingur með hunangssinnepssósu Styrkt færsla
1. | Skerið kjúklinginn í þrennt. Blandið öllum hráefnunum fyrir marineringuna saman í skál. Takið smá af marineringunni til að bera fram með kjúklinginum og bætið síðan kjúklinginum út í afganginn af marineringunni. Marinerið í kæli í 2-4 tíma eða yfir nótt t.d. í poka með rennilási. Takið úr kæli og grillið í 4-5 mínútur á hvorri hlið. |
Leave a Reply