

| 2-3 pakkar grísakótilettur í suðrænni kryddblöndu | |
| 1-2 púrrulaukar, sneiddur | |
| 1/2 - 1 brokkólí, smátt skorið | |
| 1 paprika, skorin í teninga | |
| 1/2 laukur, saxaður | |
| handfylli spínat | |
| 1 kjúklingateningur | |
| 500 ml matreiðslurjómi | |
| salt og pipar |
Frábær réttur þar sem hægt er að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum.
| 1. | Takið kjötið úr pakkningunni og þerrið. |
| 2. | Hitið 1 msk af smjöri og 1 msk af olíu á pönnu og létt-brúnið kótiletturnar á báðum hliðum. Látið í ofnfast mót. |
| 3. | Steikið grænmetið þar til það er farið að mýkjast. Hellið rjóma saman við og setjið teninginn út í. Smakkið til með salti og pipar og látið malla í nokkrar mínútur. |
| 4. | Hellið rjómablöndunni yfir kótiletturnar og látið inn í 200°c heitan ofn í 15-20 mínútur. |

Leave your comment to Cancel Reply