Innihaldslýsing

1 kg kjúklingalæri
500 g gulrætur, skornar langsum í bita
1/2 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
2 msk za'atar*
1 sítróna, börkur og safi
sjávarsalt og svartur pipar
2 tsk hunang
ólífuolía
60 g fetaostur
40 g pistasíuhnetur (eða furuhnetur)
1 avacado
klettasalat
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Látið kjúklingalæri, gulrætur, lauk, za'atar, börk af sítrónu, salt og pipar, hunang og 4 msk af ólífuolíu saman í skál og blandið öllu vel saman. Þetta má gera 6-8 klst áður en kjúklingurinn er eldaður.
2.Hitið olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn og grænmetið í skömmtum (ath ekki ofhlaða á pönnuna)
3.Látið í 160°c heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til grænmetið er farið að mýkjast og kjúklingurinn er eldaður í gegn.
4.Takið kjúklinginn úr ofninum og kreistið sítrónusafa úr hálfri sítrónu yfir kjúklinginn.
5.Blandið fetaosti og pistasíuhnetum saman í skál ásamt 2 tsk af ólífuolíu. Hellið yfir kjúklingaréttinn.
6.Látið að lokum sneiðar af avacado yfir ásamt klettasalati.

Za’atar er krydd frá miðausturlöndunum sem fæst í sumum verslunum til dæmi frá Kryddhúsinu. En það er einnig auðvelt að gera það sjáflur.

Za’atar
1 msk timían
1 msk cumin (ekki kúmen)
1 msk kóríander
1 msk ristuð sesamfræ
1 msk sumac (ég sleppi stundum)
1/2 tsk sjávarsalt
1/4 tsk chilíflögur

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.