Fyrir 4
1. | Setjið vatn og sykur saman í pott og sjóðið. Takið af hitanum og bætið rósmarín saman við. Látið standa í að minnsta kosti klukkustund. |
2. | Fjarlægið rósmarín og setjið sírópið í kæli. |
3. | Pressið safann úr greipávöxtunum. |
4. | Setjið klaka í 4 glös og látið 1/2 dl af sírópi í hvert glas. Bætið gini og greipsafanum saman við og fyllið glasið upp með sódavatni. |
5. | Skreytið með fersku rósmarín og berið fram. |
Leave a Reply