Innihaldslýsing

1 1/2 bolli sjóðandi vatn
1 bolli grófir hafrar frá Rapunzel
1 bolli demerara sykur frá Rapunzel
1 bolli Cristallino hrásykur frá Rapunzel
115g mjúkt smjör
2 egg við stofuhita
1 1/3 bolli hveiti
1 tsk kanill
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
-----------------------------
Kókoskaramella:
115g smjör
1 bolli demerara sykur frá Rapunzel
1 bolli kókosmjöl frá Rapunzel
1 msk mjólk
Það er eitthvað við hafra í bakstri, mér einfaldlega finnst þeir gera allt betra. Þessi kaka er hreinlega ein þeirra sem fólk kolfellur fyrir. Hafrar, kanill, kókos, smjör og dökkur sykur… þetta er einhver blanda sem er algjörlega skotheld. Þessi er mjög góð volg og hún smakkast ekki verr með smá rjómaslettu eða jafnvel vanilluís....

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 175°C og takið fram skúffukökuform eða stórt kringlótt
2.Sjóðið vatnið og hellið yfir hafrana í skál og setjið til hliðar.
3.Þeytið saman þar til létt og ljóst, smjörið, sykurinn og eggin
4.Í annarri skál blandið saman þurrefnum. Blandið svo saman með sleikju, um það bil helmingnum af hveitinu saman við sykurblönduna, hrærið svo höfrunum út í og rest af hveitinu.
5.Setjið deigið í formið og bakið í ca. 30 mín, fer eftir ofnum þó.
6.Takið kökuna út og kveikið á grillinu í ofninum og lagið karamelluna.
7.Fyrir karamelluna, þá blandið saman sykri, smjöri og mjólk í potti, hitið að suðu og látið malla í eina mínútu, bætið þá kókosnum saman við og smyrjið yfir kökuna með sleikju.
8.Setjið undir grillið í svona 2-3 mínútur, en eins og með kökuna, þá verður bara að fylgjast vel með þar sem grillin í ofnunum geta verið afar misjöfn, sumstaðar gæti 1 mínúta verið alveg nóg.

Það er eitthvað við hafra í bakstri, mér einfaldlega finnst þeir gera allt betra. Þessi kaka er hreinlega ein þeirra sem fólk kolfellur fyrir. Hafrar, kanill, kókos, smjör og dökkur sykur… þetta er einhver blanda sem er algjörlega skotheld.

Þessi er mjög góð volg og hún smakkast ekki verr með smá rjómaslettu eða jafnvel vanilluís.

 

 

 

 

 

Uppskrift og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes, umboðsaðila Rapunzel

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.