Hér kemur uppskrift að geggjaðri ostaídýfu sem ég er spennt að deila með ykkur. Ídýfan er fullkomin með flögum á kózýkvöldum, í partýið, með mexíkóskum mat og í raun bara hvenær sem er. Ofureinföld í gerð og alveg tryllt góð!
“Guilty pleasures” eins og þær gerast bestar
Geggjuð ostaídýfa
25 g smjör
1/2 chili, saxað smátt
1 hvítlauksrif, saxaður smátt
1 tsk paprikukrydd
1 tsk salt
2 msk hveiti
2 dl mjólk
200 g cheddar ostur, rifinn
- Bræðið smjör í potti ásamt chili, hvítlauk, paprikukryddi og salti.
- Bætið hveiti saman við og hrærið með píski þar til engir kögglar eru í blöndunni.
- Bætið þá mjólkinni hægt saman við og hrærið stöðugt í á meðan.
- Bætið að lokum ostinum saman við og bræðið við lágan hita.
- Ef blandan er of þykk bætið þá við mjólk (lítið í einu) þar til hún hefur náð æskilegri þykkt.
- Berið fram strax með flögum.
Leave a Reply