Þessi færsla er unnin í samstarfi við RANA

| ferskar lasagnaplötur, t.d. frá RANA | |
| 1 búnt fersk basilíka | |
| 200 g parmesan, rifinn | |
| 240 ml góð ólífuolía | |
| 1/2 búnt fersk steinselja | |
| 30 g furuhnetur | |
| 2 hvítlauksrif, pressuð | |
| sjávarsalt | |
| 400 g kotasæla | |
| 1 stórt egg | |
| svartur pipar | |
| 100 g kúla mozzarella, skorin í bita |
Styrkt færsla
| 1. | Basilpestó: Setjið basilíku, 150 g parmesan, ólífuolíu, steinselju, furuhnetur og hvítlauk í matvinnsluvél og blandið vel saman. |
| 2. | Hrærið saman kotasælu, eggi, sjávarsalti, pipar og 80 ml af vatni. |
| 3. | Setjið 1/4 af kotasælublöndunni í ofnfast mót (20 cm) og látið lasagnaplötur þar yfir. Látið helminginn af pestóinu þar á og helminginum af kotasælublöndunni. |
| 4. | Setjið annað lag af lasagnaplötum og afganginn af pestóinu og kotasælublöndunni. |
| 5. | Látið afganginn af parmesanostinum og mozzarella yfir allt. Setjið álpappír yfir mótið og látið í 200°c heitan ofn í um 30 mínútur. Takið álpappírinn af og brúnið ostinn í 5-10 mínútur. |
| 6. | Berið fram með góðu salati. |
Leave a Reply