Innihaldslýsing

2 msk olía
1 dl hveiti
salt og pipar
1 kg nautakjöt, t.d. nautafillet
2 msk nautakraftur frá Oscar's
400 ml heitt vatn
1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon
500 g litlar kartöflur
Safi úr 1 límónu
        Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leiðbeiningar

1.Blandið öllum hráefnum fyrir karrýmaukið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið.
2.Setjið hveiti á disk og bætið salti og pipar saman við. Skerið kjötið í munnbita og veltið upp úr hveitinu.
3.Hitið olíu á stórri pönnu eða í potti og brúnið kjötið (ágætt að skipta þessu niður í tvo hluta).
4.Lækkið hitann og bætið karrýmaukinu saman við og steikið áfram í nokkrar mínútur.
5.Setjið nautakraft í heitt vatn og hellið því saman við kjötið ásamt kókosmjólkinni.
6.Lækkið hitann og hægeldið í 1 klst og 30 mínútur. Bætið við nautasoði ef þörf er á.
7.Skerið kartöflurnar niður til helminga eða í fernt og bætið saman við. Sjóðið áfram í 20-30 mínútur.
8.Kreystið safa úr einni límónu og bætið saman við. Saxið kóríander og stráið yfir ásamt sneiðum af chilí.
9.Berið fram með hrísgrjónum og rajita.

 

 

 

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.