

| 1 laukur, smátt skorinn | |
| 6 hvítlauksrif, saxað | |
| 1 dl grænar baunir | |
| 1 grænt chilí, saxað | |
| 1 msk kókosolía | |
| 1 tsk turmeric | |
| 1/2 tsk kóríanderkrydd | |
| 1 tsk karrý | |
| 1 tsk cumin (ekki kúmen) | |
| 2 tsk salt | |
| 1 dós kókosmjólk frá Blue dragon | |
| 140 g tómatpúrra | |
| 2 bollar grænar linsubaunir frá Raputzel | |
| 3 bollar heitt vatn | |
| 1 msk Oscar grænmetiskraftur | |
| Meðlæti: Kóríander, kasjúhnetur, hrísgrjón, grísk jógúrt | |
| Pataks naan brauð |
Fyrir 4
| 1. | Hitið olíu á pönnu og steikið það grænmeti sem þið viljið nota (ég notaði 2 gulrætur) bætið lauk, hvítlauk, engifer og chilí saman við og steikið áfram í mínútu. |
| 2. | Bætið turmeric, kóríander, karrý, cumin og salti saman við. |
| 3. | Eftir 30 sekúndur látið þá kókosmjólk, tómatpúrru, vatn, grænmetiskraft, grænar linsubaunir (óeldaðar) og hrærið saman. Hitið að suðu, setjið lok á og lækkið hitann. Látið malla í 45 mínútur. |
| 4. | Takið af hitanum og látið standa í 5 mín. |
| 5. | Smakkið til og bætið við kryddum að eigin smekk. |
| 6. | Smyrjið naan með bræddu smjöri og eldið skv leiðbeiningum á pakkningu. |
| 7. | Berið fram með hrísgrjónum og naan. |

Leave a Reply