Innihaldslýsing

1 laukur, smátt skorinn
6 hvítlauksrif, saxað
1 dl grænar baunir
1 grænt chilí, saxað
1 msk kókosolía
1 tsk turmeric
1/2 tsk kóríanderkrydd
1 tsk karrý
1 tsk cumin (ekki kúmen)
2 tsk salt
1 dós kókosmjólk frá Blue dragon
140 g tómatpúrra
2 bollar grænar linsubaunir frá Raputzel
3 bollar heitt vatn
1 msk Oscar grænmetiskraftur
Meðlæti: Kóríander, kasjúhnetur, hrísgrjón, grísk jógúrt
Pataks naan brauð
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu á pönnu og steikið það grænmeti sem þið viljið nota (ég notaði 2 gulrætur) bætið lauk, hvítlauk, engifer og chilí saman við og steikið áfram í mínútu.
2.Bætið turmeric, kóríander, karrý, cumin og salti saman við.
3.Eftir 30 sekúndur látið þá kókosmjólk, tómatpúrru, vatn, grænmetiskraft, grænar linsubaunir (óeldaðar) og hrærið saman. Hitið að suðu, setjið lok á og lækkið hitann. Látið malla í 45 mínútur.
4.Takið af hitanum og látið standa í 5 mín.
5.Smakkið til og bætið við kryddum að eigin smekk.
6.Smyrjið naan með bræddu smjöri og eldið skv leiðbeiningum á pakkningu.
7.Berið fram með hrísgrjónum og naan.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.