Kjúklingaréttur með beikoni og sveppum í parmesanrjómasósu
Kjúklingaréttur með beikoni og sveppum í parmesanrjómasósu
Kjúklingaréttur með beikoni og sveppum í parmesanrjómasósu

Innihaldslýsing

8 sneiðar beikon
900 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
smjör
1 laukur
300 g sveppir
1 dós 5% sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka
1 dl rjómi
2 msk tómatpúrra
1 dl parmesan, rifinn
salt og pipar
Kjúklingaréttur með beikoni og sveppum í parmesanrjómasósu

Leiðbeiningar

1.Steikið beikon á pönnu. Takið af pönnunni og leggið á eldhúspappír. Geymið.
2.Skerið kjúklinginn í minni bita. Hitið smjör á pönnu og steikið kjúklinginn. Saltið og piprið. Setjið kjúklinginn í ofnfast mót.
3.Skerið laukinn í helming og síðan hvor helming í þunnar sneiðar.
4.Skerið sveppina niður og steikið með lauknum. Hellið sýrðum rjóma, rjóma og tómatmauki saman við og hitið að suðu. Takið þá af hitanum og bætið parmesanostinum saman við. Hellið blöndunni yfir kjúklinginn og setjið beikonbita yfir allt.
5.Hitið í 225°heitum ofni í 15 mínútur.

Ef þið eruð að leita af einföldum, fljótlegum og geggjuðum kjúklingarétt sem slær í gegn þá er þessi  sá sem þið hafið verið að leita af. Hér er á ferðinni frábær kjúklingaréttur og nýjasta uppáhald fjölskyldunnar með beikoni, sveppum og parmesanrjómasósu sem setur punktinn yfir i-ið.

Færslan er styrkt.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.