700 g kjúklingalundir, t.d. frá Rose Poultry | |
2 dl sýrður rjómi | |
0.5 dl rjómi | |
100 g fetaostur | |
3 msk Sweet chilí sósa frá Blue dragon | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
1 tsk timían | |
salt og pipar | |
4 sneiðar beikon, eldað stökkt |
Fyrir 3-4
1. | Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og dreipið olíu yfir hann. Saltið og piprið. Látið inní 210°c heitan ofn í 15 mínútur. |
2. | Setjið sýrðan rjóma, rjóma, fetaost, sweet chilí sósu, hvítlauk og timían í matvinnsluvél/blandara og blandið vel saman. |
3. | Takið kjúklinginn úr ofninum og hellið sósunni yfir hann. |
4. | Látið inní ofn í 15-20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
5. | Takið úr ofni og stráið stökku beikonbitum yfir. |
Leave a Reply