
| 1/2 rauðlaukur, saxaður | |
| 2 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
| 1/2 púrrulaukur, sneiddur | |
| 1 paprika, smátt skorin | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 3 dl rjómi | |
| 1 tsk sambal oelek | |
| 2-3 msk mango chutney | |
| salt og pipar | |
| 3-4 kjúklingabringur | |
| rifinn ostur |
Fyrir 3-4
| 1. | Látið olíu á pönnu og steikið grænmetið í 2-3 mínútur við meðalhita eða þar til það er farið að mýkjast. |
| 2. | Bætið rjóma, sambal oelek, mango chutney út á pönnuna og smakkið til með salti og pipar. Látið malla við vægan hita í 3-4 mínútur. |
| 3. | Brúnið kjúklingabringurnar á báðum hliðum. |
| 4. | Látið kjúklingabringurnar í ofnfast mót og hellið sósunni yfir. |
| 5. | Setjið rifinn ost yfir allt og eldið í 180°c 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn. |
| 6. | Mér finnst gott að láta á grill í 1-2 mínútur til að brúna ostinn. |
| 7. | Berið fram með hrísgrjónum eða pasta og einföldu salati. |
Leave a Reply