Innihaldslýsing

1/2 rauðlaukur, saxaður
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
1/2 púrrulaukur, sneiddur
1 paprika, smátt skorin
2 msk ólífuolía
3 dl rjómi
1 tsk sambal oelek
2-3 msk mango chutney
salt og pipar
3-4 kjúklingabringur
rifinn ostur
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Látið olíu á pönnu og steikið grænmetið í 2-3 mínútur við meðalhita eða þar til það er farið að mýkjast.
2.Bætið rjóma, sambal oelek, mango chutney út á pönnuna og smakkið til með salti og pipar. Látið malla við vægan hita í 3-4 mínútur.
3.Brúnið kjúklingabringurnar á báðum hliðum.
4.Látið kjúklingabringurnar í ofnfast mót og hellið sósunni yfir.
5.Setjið rifinn ost yfir allt og eldið í 180°c 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn.
6.Mér finnst gott að láta á grill í 1-2 mínútur til að brúna ostinn.
7.Berið fram með hrísgrjónum eða pasta og einföldu salati.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.